Samningur við Allianz
Þegar launþegi hefur gengið frá samningi um Ævilífeyri Allianz fær launagreiðandi afrit af samningnum til varðveislu. Æskilegt er að af afritið sé geymt með skattkorti launþega. Samkvæmt lögum hefur launagreiðandi 30 daga til að skila iðgjöldum. Mjög mikilvægt er að launagreiðendur skili iðgjöldum reglulega. Ef iðgjöld berast ekki vörsluaðila verður launþegi af ávöxtun.
Skil á greiðslum
Við skil á greiðslum þurfa alltaf að fylgja skilgreinar til þess að unnt sé að skipta greiðslunni niður á launþega. Launþega er heimilt að leggja allt að 4% af óskattlögðum tekjum í viðbótarlífeyrissparnað. Launagreiðandi sér um að koma greiðslunum til skila. Mótframlag launagreiðanda fer eftir kjarasamningum en algengast er að mótframlagið sé 2%.
Rafrænar skilagreinar
Þeir launagreiðendur sem senda skilagreinar rafrænt þurfa ekki að senda skilagreinar í tölvupósti eða í pósti. Ein sending dugar. Einnig eru einhver dæmi um að skilagreinar séu sendar aftur þegar iðgjöldin eru greidd en þess gerist ekki þörf.
Greiðsla iðgjalda
Leiðbeiningar um greiðslu iðgjalda til Allianz:
Allianz
Kennitala: 580991-1069
Banki: 1184-26-850000
Lífeyrisskilagreinar – smelltu hér
Netfang skilagreina: skilagreinar@allianz.is
Lífeyrissjóðsnúmer 941
Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
Netfang: allianz@allianz.is
Sími 595 3300, fax 595 3350
Gjalddagi – 10. dagur næsta mánaðar á eftir launatímabili.
Eindagi – síðasti dagur næsta mánaðar á eftir launatímabili.