Líftryggingar

Líftrygging án söfnunar (Risiko Leben)

Líftrygging þjónar þeim tilgangi að tryggja fjárhagslegt öryggi eftirlifenda. Enginn ábyrgur framfærandi fjölskyldu ætti að vera án líftryggingar. Líftrygging er ein mikilvægasta tryggingin sem hver og einn ætti að hafa í nútímasamfélagi.

Lífrygging án söfnunar:

Tryggir fjárhag aðstandenda ef hinn tryggði fellur frá.

Líftrygging gerir aðstandendum kleift að endurskipuleggja líf sitt.

Greitt er sama iðgjald í evrum allan samningstímann.

Menntun, starf og heilsa hafa áhrif á iðgjald.

Hægt er að kaupa viðbótartryggingu sem margfaldar bótafjárhæð vegna andláts af völdum slyss.

Tryggði velur í upphafi samnings hver fær bæturnar ef hann fellur frá, einfalt er að breyta því með því að fylla út umsókn þess efnis.

Fyrir fólk á aldrinum 18 til 50 ára.



Allianz metur hvern viðskiptavin eftir aldri, starfi og heilsu. Algengt er að ferlið taki rúman mánuð þar til trygging tekur gildi.

Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu hér til hliðar til þess að fá frekari upplýsingar.








Leit