Tryggingarfélagið Allianz var stofnað í Berlín 5. febrúar 1890. Frá fyrsta degi hefur starfsemi félagsins verið samfelld sigurganga á tryggingamörkuðum í Þýskalandi og um allan heim. Allianz er ein stærsta tryggingasamsteypa veraldar með starfsemi í yfir 70 þjóðlöndum, 155 þúsund starfsmenn og um 75 milljónir viðskiptavina.
Allianz opnaði skrifstofu á Íslandi í nóvember 1994 og býður Íslendingum persónutryggingar, þ.e. lífeyris-, líf- og slysatryggingar í gegnum Allianz Leben Versicherung AG og Allianz Versicherung í Stuttgart.
Íslenskir samstarfsaðilar Allianz eru:
Tryggingar og ráðgjöf, S: 590-1600
Tryggingamiðlun Íslands ehf S: 553-6688
Nýja Vátryggingarþjónustan. S: 581-1616


Allianz er með starfsleyfi frá Fjármálaráðuneytinu og starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Allianz á að fullu eða hluta til fjölmörg tryggingarfélög, fjárfestingarfélög og stórfyrirtæki innan sem utan Þýskalands, fyrirtæki eins og RCM og Pimco. Þá er Allianz með stór útibú víða um heim, sbr. Allianz Australia, Allianz Hungaria, Allianz India, Allianz China ofl. Allianz á sér meira en hundrað ára samfellda sögu velgegni og farsældar og er það sá grundvöllur sem fyrirtækið byggir á.

Hér er hægt að skoða allar helstu upplýsingarnar um Allianz SE. Fyrir þá sem vilja kynna sér helstu atburði í sögu Allianz þá er hægt að skoða tímalínu með öllum helstu áföngunum í sögu Allianz.