Tilkynningar

27.05.2010

Úttekt FME á Allianz á Íslandi.

Athugasemd við frétt á visir.is “FME gerir athugasemdir við starfshætti Allianz”


Í maí 2009 kom FME í heimsókn til Allianz til þess að taka út starfsemi félagsins hér á Íslandi.  Sú úttekt leiddi í ljós að starfsemi félagsins væri samkvæmt lögum og reglum er starfsemin heyrði undir en þó vorur nokkur atriði sem FME taldi að mættu betur fara.

Þess má geta að Allianz er 120 ára gamalt fyrirtæki með trausta og mikla sögu og er mikil áhersla lögð á það að vinna eftir settum lögum og reglum hverju sinni.  Allianz tekur því mikið mark á athugasemdum FME og vill árétta að öll þau atriði er sett voru fram í skýrslunni fyrir ári síðan hafa verið tekin til skoðunar og leiðrétt þar sem við á.

Allianz vill undirstrika að kappkostað er að vinna í einu og öllu eftir settum reglum og lögum og fagnar því að FME taki starfsemi félagsins til skoðunar og geti því leiðbeint um það sem betur má fara.








Leit