06.01.2011
Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp fjármálaráðherra sem heimilar einstaklingum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að taka út meira af viðbótarlífeyrissparnaði sínum en áður var leyfilegt. Nú verður hægt er að fá greiddar út allt að 2,5 milljón króna til viðbótar við þá 2,5 milljónir sem áður var unnt að taka út. Einstaklingum verður þar með heimilt að taka út samanlagt 5 milljónir króna af viðbótarlífeyrissparnaði sínum svo fremi að inneign rétthafa hafi numið þeirri upphæð við gildistöku laganna 1. janúar 2011.
Útgreiðslutímabilið verður allt að 12 mánuðir fyrir þá sem nýta sér báðar heimildirnar en lengd þess ræðst af heildarfjárhæð útgreiðslunnar. Þeir sem vilja nýta sér heimildina þurfa að sækja um fyrir 1. apríl 2011 og skulu þeir leita til vörsluaðila viðbótarlífeyrissparnaðar síns eftir frekari upplýsingum.
Allianz hefur fulltrúa sem sjá um útgreiðslur úr Ævilífeyrir Allianz í útibúi BYR að Digranesvegi 1, 200 Kópavogi.