24.02.2011
Rekstrarhagnaður Allianz (heildin) fyrir árið 2010 nam 8,2 milljörðum evra (c.a. 1300 milljarðar ISKR) og jókst um 17% milli áranna 2010 og 2009
Tekjur félagsins voru 106,5 milljarðar evra (c.a. Sautján þúsund milljarðar ISKR) og hafa aldrei verið meiri. Er það 9,3% tekjuaukning á milli áranna 2010 og 2009
Eignir félagsins samkvæmt ársreikningi eru 624 milljarðar evra (c.a. 100.000 milljarðar ISKR). Er þetta eitt besta ár í sögu Allianz skv. fréttatilkynningu frá stjórnarformanni félagsins, Mr. Michael Diekmann.