Tilkynningar

17.05.2011

Niðurstaða Neytendastofu

Neytendastofa birti úrskurð sinn í máli Sparnaðar gegn Allianz þann 13 maí sl. Málið varðar samanburð á vörum Allianz og Sparnaðar og með úrskurði sínum mælist Neytendastofa til þess að dreifingu á umræddu samanburðarblaði verði hætt. Niðurstaða Neytendastofu kemur Allianz í opna skjöldu enda lagði Allianz áherslu á að leita bæði til Sparnaðar og þýska félagsins Versicherungs Kammer Bayern í leit að upplýsingum um vörur Sparnaðar sem og að fá staðfest þau gögn sem unnið var með. Einnig var leitað til nokkurra óháðra þýskra ráðgjafafyrirtækja til að fá sem skýrasta mynd af samanburði fyrirtækjanna.

Neytendastofa gagnrýnir að Allianz hafi ekki á samanburðarblaðinu birt tölur frá Sparnaði með lokaarði. Ástæða þess er einfaldlega sú að Allianz fékk upplýsingar frá fulltrúa Versicherungs Kammer Bayern sem fullyrti að lokaarður sé ekki reiknaður á tryggingasamninga sem Bayern bjóði uppá hér á Íslandi. Upplýsingar á heimasíðu Sparnaðar staðfesta að ávöxtun er ekki með lokaarði.

Neytendastofa gerir athugasemd við að Allianz hafi notað gengisbreytingar frá árinu 2008 af því þær voru óvanalega miklar það ár. Allar tölur voru sýnilegar og ekki var reynt að fela það á nokkurn hátt. Hins vegar hefur Allianz í nýjustu gögnum sínum þar sem bornar eru saman ávöxtunaleiðir Allianz og íslenskra fyrirtækja tekið skýrt fram að um væri að ræða hið mikla fall krónunnar það ár.

Neytendastofa gerir athugasemdir við útreikninga á samanburðarblaðinu og finnst þeir vera einfaldaðir um of. Haft var samband við starfsmann hjá Sparnaði til að bera undir hann hvaða útreikningur yrði notaður til að ekki færi á milli mála hvernig útreikningi yrði háttað enda er tekið fram á samanburðarblaði hvaða útreikniformúla er notuð.

Allianz mun strax lagfæra umrætt samanburðarblað eftir tilmælum Neytendastofu ásamt því að bæta við nýjum upplýsingum sem hafa verið birtar af þýskum ráðgjafarfyrirtækjum sem staðfesta að Allianz hefur betri ávöxtun til lengri tíma en Bayern. Á sama tíma er Allianz að íhuga að áfrýja úrskurði Neytendastofu.







Leit