Neyðarþjónusta Allianz er fyrir viðskiptavini Allianz sem hafa slysatryggingu.
Tryggingartakar fá kort með neyðarnúmeri og þar fæst samband við aðila sem geta aðstoðað við nær allar aðstæður. Þar sem um er að ræða alþjóðlega þjónustu er ekki hægt að tala íslensku en hægt er að tala flest önnur tungumál.

Kortið er sérstaklega ætlað til að aðstoða ef viðskiptavinir lenda í vandræðum vegna slysa í utanlandsferðum. Aðstoðin felst í: hjálparþjónustu, peningagreiðslum, ráðgjöf í læknisfræðilegum efnum, fjölskyldubótum eða aðstoð við skipulagningu sjúkraflutninga til heimalands. Best er að lesa yfir skilmála fyrir Unfall Card til þess að kynna sér enn frekar þau réttindi sem fylgja tryggingunni.
Viðskiptavinum er bent á að hafa samband við skrifstofu Allianz á Íslandi til að fá frekari upplýsingar um þessa þjónustu.