Hér að neðan má sjá nokkra kosti viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður):
- Launþegi á rétt á mótframlagi frá launagreiðanda samkvæmt kjarasamningi.
- Fjármagnstekjuskattur greiðist ekki af viðbótarslífeyristryggingu.
- Skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
- Skattalegt hagræði myndast þar sem iðgjald er ekki skattlagt við innborgun.
- Úttekt getur hafist við 60 ára aldur.
- Sveigjanlegar reglur um útborgun.
- Hærri ráðstöfunartekjur á eftirlaunaárunum og betri nýting skattkorts.
- Þægilegt sparnaðarform þar sem launagreiðandi sér um að greiða sparnaðinn til vörsluaðila.
Já, það er mögulegt. Ef þú vilt að við aðstoðum þig hafðu þá samband við
Allianz.
Viðskiptavinir Allianz hafa fjölbreytt val um töku viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) Þeir geta fengið:
A) Eingreiðslu við 60 ára aldur.
B) Lífeyri í hverjum mánuði ævina á enda.
C) Tekið hluta sem eingreiðslu og rest sem ævilangan lífeyri.
Endurkaupsvirði eru inngreidd iðgjöld ásamt ávöxtun að frádregnum kostnaði við samning en kemur eingöngu til ef samning er slitið fyrir samningslok.
Allianz er skylt samkvæmt þýskum lögum að skila 90% af umframhagnaði aftur til viðskiptavina (þ.e. umfram þá ávöxtun sem áætluð var við upphafs samnings). Allianz hefur verið að skila 94-98% sem þýðir að Allianz gerir betur en lofað er. Viðskiptavinir Allianz njóta góðs af því, ekki eingöngu fyrirtækið.
Samningar um viðbótarlífeyristryggingu (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) sem stofnaðir voru fyrir 1. apríl 2005 hafa rétt á að fara í 24 mánaði iðgjaldafrí en samningar sem stofnað var til eftir 1. apríl 2005 hafa rétt á 36 mánaða iðgjaldafríi. Tryggingarvernd í iðgjaldafríi er mismunandi eftir stöðu og tegund hvers samnings og við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér málið vel. Hafi endurkaupsvirði náð 2.000 evrum getur samningurinn verið í ávöxtun án iðgjaldagreiðslu til samningsloka.
Lífeyristrygging Allianz er fyrir þá sem vilja öruggan sparnað í sterkum gjaldmiðli. Hægt er að kaupa viðbótartryggingu sem margfaldar bótafjárhæð vegna andláts af völdum slyss, sem er góður kostur fyrir þá sem ekki fá hefðbundna líftryggingu annars staðar. Sparnaðurinn er með tryggða lágmarksávöxtun í evrum.
Til að tryggja fjárhagslegt öryggi við starfslok.
Lífeyristrygging Allianz er fyrir alla þá sem vilja spara til lengri tíma og hafa ávöxtun sína tryggða í samningslok.
Lífeyristrygging Allianz er greidd út til þess aðila sem þú velur við upphaf samnings. Hægt er að breyta um rétthafa dánarbóta með því að undirrita samning þess efnis.
Samningar sem stofnaðir voru fyrir 1. apríl 2005 hafa rétt á að fara í 24 mánaði iðgjaldafrí en samningar sem stofnað var til eftir 1. apríl 2005 hafa rétt á 36 mánaða iðgjaldafríi. Tryggingarvernd í iðgjaldafríi er mismunandi eftir stöðu og tegund hvers samnings og við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér málið vel. Hafi endurkaupsvirði náð 2.000 evrum getur samningurinn verið í ávöxtun án iðgjaldagreiðslu til samningsloka.
Hægt er að halda áfram með lífeyristryggingu Allianz en bankaviðskiptin þurfa að fara fram í gegnum Ísland.
Nei, það geta ekki allir fengið líftryggingu. Allianz metur sérstaklega hvern viðskiptavin sem sækir um líftryggingu. Hafðu samband við ráðgjafa Allianz til að fá nánari upplýsingar.
Allianz selur tvær mismunandi tegundir líftrygginga: líftryggingu án söfnunar (Risiko Leben) og líftryggingu með söfnun (Leben).
Allianz býður upp á óbreytt iðgjald út samningstímann.
Já, það er dýrara fyrir reykingarfólk að líftryggja sig en hægt er að breyta líftryggingunni í reyklausa ef viðkomandi hefur verið reyklaus í 12 mánuði eða lengur.
Viðskiptavinir ákveða hver fær dánarbæturnar þegar þeir gera samninginn. Mögulegt er breyta um aðila með því að hafa samband við Allianz.
Hægt er að breyta iðgjaldi á ýmsa vegu. Hafðu samband við ráðgjafa Allianz til að fá nánari upplýsingar.
Líftrygging tekur gildi fyrsta dag þarnæsta mánaðar. Allianz býður upp á tímabundna tryggingarvernd fyrir fráfall ef það tengist ekki heilbrigðisástandi hins tryggða á þeim tíma þegar tímabundna tryggingaverndin gengur gildi. Upphæð tímabundnu tryggingaverndarinnar verður þó aldrei hærri en 15.000 evrur. Tímabundin tryggingarvernd tekur gildi þegar skrifstofa Allianz í Þýskalandi móttekur samninginn, og stendur þar til samningurinn tekur formlega gildi, þ.e. geti Allianz tryggt viðkomandi.
Það geta ekki allir fengið slysatryggingu. Þeir sem þurfa mikla eða mjög mikla umönnun í skilningi almannatrygginga, svo og geðsjúklingar, eru ekki tryggingarhæfir og eru ótryggðir þótt iðgjald sé greitt.
Allstaðar, bæði heima og erlendis, en þó aðeins í ákveðinn tíma í stríðshrjáðum löndum og þar sem styrjaldir brjótast út,
sjá skilmála.
Það telst slys ef hinn tryggði bíður óviljandi heilsutjón vegna skyndilegs atburðar (slysatilvik) sem verkar á líkama hans utan frá. Frekari skilgreiningar eru í
skilmálum.
Aðstandendur eru almennt ekki líka slysa-/líftryggðir en þó er maki tryggður tímabundið eftir giftingu og börn tímabundið frá fæðingu. Ef viðskiptavinur tilkynnir Allianz um giftingu eða fæðingu innan þriggja mánaða tímabils frá atburði þá framlengist tryggingarverndin fyrir maka um þrjá mánuði og níu mánuði fyrir börnin.
Tryggingarupphæðin fyrir hvern einstakling sem bætist við er 60.000 evrur sem greiðist í hlutfalli við örorkumat. Dánarbætur vegna fráfalls maka eru 12.000 evrur og 6.000 evrur vegna fráfalls barns.
Leiði slys til örorku hins tryggða sem nemur minnst:
- 70% fyrir lok 25. aldursárs
- 80% fyrir lok 50. aldursárs
- 90% fyrir lok 60. aldursárs
greiðum við fimmfaldar örorkubætur. Miða skal við aldur hins tryggða þegar slysið verður.
Fimmföld upphæð grunnörorku sem var valin þegar trygging var tekin. Ef á þetta reynir tekur Allianz yfir greiðslur iðgjalda út samningstímann.
Hægt er að stöðva greiðslur í allt að 24 mánuði – en á meðan greiðslur berast ekki er engin tryggingarvernd og samningstíminn framlengist sem þessu tímabili nemur. Önnur úrræði eru t.d að lækka iðgjald. Til að óska eftir lækkun á iðgjaldi þarf að hafa samband við skifstofu Allianz.
Ef um er að ræða slysatryggingu með söfnun (UBR) er ekki er hægt að hækka iðgjaldið aftur. Ef greiðslum er hætt á slysatryggingu með söfnun (UBR) ávaxtast inneign til samningsloka án tryggingarverndar.
Allianz tryggir börn á öllum aldri. Best er að hafa samband við ráðgjafa Allianz til að fá frekari upplýsingar um barnatryggingar Allianz.
Slys geta orðið hvar sem er. Skyndilega og án vilja - í umferðinni, á heimilinu, í fríi og við ástundun íþrótta. Fátt er verra en þegar fjárhagsörðugleikar fylgja í kjölfar slysa.
Fáir vita að skyldutrygging barna gildir alla jafna í og við skóla, leikskóla, dagskóla, gæsluvelli og á sumarnámskeiðum sveitafélaga.
Flest slys á börnum verða hins vegar í frítíma. Til þess að tryggja fjárhagslegt öryggi þurfum við því að viðbótartryggja börnin okkar. Slysatrygging Allianz nær yfir öll slys í hinu daglega lífi, þar með talið slys sem kunna að verða á framtönnum barna. Tryggingin gildir 24 tíma á sólarhring, alla daga ársins og hvar sem er í heiminum.
Ekki er mögulegt að kaupa sjóði AGI í dag. Stefnt er að því að hefja sölu á sjóðum um leið og gjaldeyrishöftum verður aflétt.
Allianz er undir eftirliti BaFin sem er þýska fjármálaeftirlitið, þar er eiginfjárgrunnur Allianz sagður sterkur og ekki líkur á vandræðum. Matsfyrirtækin S&P, Moody´s og A.M taka Allianz reglulega út og er hægt að skoða einkunnir þeirra
hér, fyrirtækin eru öll sammála um ágæti Allianz og telja fjárhagslegann styrkleika Allianz mikinn.
Allianz er með fulltrúa staðsettann í útibúi BYR að Digranesvegi 1, Kópavogi sem tekur á móti viðskiptavinum Allianz og aðstoðar við fyrirframgreiðslu viðbótarlifeyristryggingar. Alþingi hefur samþykkt áframhaldandi heimild til útgreiðslu á viðbótarlífeyristryggingu (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar eða séreignasparnaður) og geta rétthafar nú tekið út samanlagt 2,5 milljónir króna af inneign sinni. Heimildin miðast við inneign við gildistöku laganna. Mánaðarleg útborgun er kr. 111.111 og ræðst úgreiðslutíminn af heildarfjárhæð útgreiðslunnar. Heimildin gildir til 31. mars 2011.
Allir sem eru með samning um viðbótarlífeyrisstryggingu (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) geta sótt um fyrirframgreiðslu. Útgreitt er endurkaupsvirði (sjá nánar um endurkaupsvirði í spurt og svarað).
Við fyrirframgreiðslu er greiddur tekjuskattur miðað við gildandi lög hverju sinni. Við bendum viðskiptavinum á að fyrirframgreiddar viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) jafngildir launagreiðslum þannig að greiðslur leggjast við launatekjur og geta því haft áhrif á skattþrep tekna.
Hámarksupphæð fyrirframgreiðslu er 2.500.000 kr. fyrir skatt og er hún greidd út á 23 mánuðum. Ef inneign rétthafa er lægri en 2.500.000 kr. eða rétthafi óskar eftir að taka út lægri upphæð styttist greiðslutíminn hlutfallslega í samræmi við það.
Ef viðskiptavinur á 2.500.000 ísk eða meira í endurkaupsvirði þá er mögulegt að fá 111.111 kr. fyrir skatt mánaðarlega í 23 mánuði. Tekjuskattur er greiddur af fyrirframgreiðslunni.
Fyrirframgreiðsla viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur fyrirframgreiðslan ekki áhrif á upphæð húsaleigubóta, barnabóta, vaxtabóta eða atvinnuleysisbóta.
Viðskiptavinur fyllir út umsókn um útgreiðslu hjá ráðgjafa Allianz að Digranesvegi 1 í Kópavogi.
Útgreiðsla er síðan 20. hvers mánaðar fyrir umsóknir sem berast fyrir þann 10. mánuðinum á undan.
Dæmi: umsókn móttekin 10. júní – útborgun 20. júlí.
Ef 10. dagur mánaðar er frídagur þá næsti virki dagur á eftir, ef 20. er frídagur þá næsti virki dagur á
undan.
Um útgreiðslu séreignarsparnaðar gilda lög.
http://www.althingi.is/altext/136/s/pdf/0553.pdf