Líftrygging með söfnun (Leben) þjónar þeim tilgangi að tryggja fjárhagslegt öryggi eftirlifenda. Enginn ábyrgur framfærandi fjölskyldu ætti að vera án líftryggingar. Líftrygging með söfnun tryggir fjárhagslegt öryggi eftirlifanda, auk þess sem hluti iðgjalds fer í sparnað með tryggðri ávöxtun sem fæst greitt út í samningslok. Hægt er að fá lán út á líftryggingu með söfnun. Líftrygging er ein mikilvægasta tryggingin sem hver og einn ætti að hafa í nútímasamfélagi.
Líftrygging með söfnun:
Líftrygging er hugsuð sem fjárhagsleg vernd fyrir nánustu aðstandendur hins tryggða.
Grunnlíftrygging hækkar þegar iðgjöld berast. Sparnaður leggst að hluta við grunnlíftryggingu.
Allianz tryggir upphæðina sem þú leggur til í sparnaðinn með lágmarksávöxtun.
Hægt er að stjórna því hvernig upphæðin skiptist milli sparnaðar og líftryggingar.
Hægt er að kaupa viðbótartryggingu sem margfaldar bótafjárhæð vegna andláts af völdum slyss.
Til að tryggja lágmarksávöxtun þarf samningur að halda í 12 ár að lágmarki.
Mögulegt er að fá lán út á sparnað að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Hægt er að greiða með kreditkorti eða greiðsluseðli.
Tryggði velur í upphafi samnings hver fær bæturnar ef hann fellur frá. Einfalt er að breyta því með því að fylla út umsókn þess efnis.
Sparnað er hægt að taka út sem eingreiðslu við samningslok eða með mánaðarlegum greiðslum.

Líftrygging með söfnun felur einnig í sér sparnað með tryggðri ávöxtun í evrum. Allianz metur hvern viðskiptavin eftir aldri, starfi og heilsu. Algengt er að ferlið taki rúman mánuð þar til trygging tekur gildi.
Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.