Það geta ekki allir fengið slysatryggingu. Þeir sem þurfa mikla eða mjög mikla umönnun í skilningi almannatrygginga, svo og geðsjúklingar, eru ekki tryggingarhæfir og eru ótryggðir þótt iðgjald sé greitt.
Allstaðar, bæði heima og erlendis, en þó aðeins í ákveðinn tíma í stríðshrjáðum löndum og þar sem styrjaldir brjótast út,
sjá skilmála.
Það telst slys ef hinn tryggði bíður óviljandi heilsutjón vegna skyndilegs atburðar (slysatilvik) sem verkar á líkama hans utan frá. Frekari skilgreiningar eru í
skilmálum.
Aðstandendur eru almennt ekki líka slysa-/líftryggðir en þó er maki tryggður tímabundið eftir giftingu og börn tímabundið frá fæðingu. Ef viðskiptavinur tilkynnir Allianz um giftingu eða fæðingu innan þriggja mánaða tímabils frá atburði þá framlengist tryggingarverndin fyrir maka um þrjá mánuði og níu mánuði fyrir börnin.
Tryggingarupphæðin fyrir hvern einstakling sem bætist við er 60.000 evrur sem greiðist í hlutfalli við örorkumat. Dánarbætur vegna fráfalls maka eru 12.000 evrur og 6.000 evrur vegna fráfalls barns.
Leiði slys til örorku hins tryggða sem nemur minnst:
- 70% fyrir lok 25. aldursárs
- 80% fyrir lok 50. aldursárs
- 90% fyrir lok 60. aldursárs
greiðum við fimmfaldar örorkubætur. Miða skal við aldur hins tryggða þegar slysið verður.
Fimmföld upphæð grunnörorku sem var valin þegar trygging var tekin. Ef á þetta reynir tekur Allianz yfir greiðslur iðgjalda út samningstímann.
Hægt er að stöðva greiðslur í allt að 24 mánuði – en á meðan greiðslur berast ekki er engin tryggingarvernd og samningstíminn framlengist sem þessu tímabili nemur. Önnur úrræði eru t.d að lækka iðgjald. Til að óska eftir lækkun á iðgjaldi þarf að hafa samband við skifstofu Allianz.
Ef um er að ræða slysatryggingu með söfnun (UBR) er ekki er hægt að hækka iðgjaldið aftur. Ef greiðslum er hætt á slysatryggingu með söfnun (UBR) ávaxtast inneign til samningsloka án tryggingarverndar.