Slysatryggingar

Slysatrygging án söfnunar (Risiko)


Kostir slysatryggingar án söfnunar (Risiko):

Trygging allan sólarhringinn hvar sem er í  heiminum.

Slysatrygging tryggir bætur til viðskiptavinar verði hann fyrir slysi,  bæði í vinnu og frítíma.

Allianz verndar alla fjölskylduna: Maki er sjálfkrafa tryggður í þrjá mánuði eftir giftingu og hver fjölskyldumeðlimur í sex mánuði frá fæðingu. Ef haft er samband við skrifstofu þá framlengist tryggingarverndin (sjá skilmála).

Ef slys hefur langtímaafleiðingar eru greiddar bætur, upphæð ræðst af skerðingu á starfshæfni. 

Tryggingin nær yfir lýtaaðgerðir (vegna slyss) og björgunarkostnað.

Við 70% varanlega örorku fimmfaldast grunnslysabætur, hjá læknum tvöfaldast grunnslysabætur við 70% örorku vegna þess að notast er við aðra örorkutöflu í þeirra samningum.

Hagstæð iðgjöld fyrir háar bætur.


Viðskiptavinir geta valið viðbótartryggingu (Unfall Rente) með slysatryggingu án söfnunar. Unfall Rente tryggir mánaðarlegan lífeyrir til æviloka ef örorka er metin 50% eða meiri.

Slysatrygging án söfnunar tekur á eftirtöldum þáttum:

Við örorku: Ef slys hefur langtíma afleiðingar eru greiddar umsamdar bætur. Upphæð bóta ræðst af skerðingu á starfshæfni eða hlutfalli örorkunnar.

Viðbótarslysabætur: Ef hinn tryggði er óvinnufær í þrjá mánuði í kjölfar slyss greiðast umsamdar bætur. Ef hinn tryggði er óvinnufær aðra þrjá mánuði (samtals 6 mánuði) greiðist sama bótafjárhæð aftur. Það nægir að hinn tryggði sé metinn 50% óvinnufær seinni þrjá mánuðina.

Sjúkrahús dagpeningar: Eru greiddir fyrir 1 til 3 daga sem hinn slasaði liggur á sjúkrahúsi yfir nótt. Frá fjórða degi til allt að þremur árum frá slysi eru greiddir tvöfaldir sjúkrahús dagpeningar. 

Dánarbætur: Ef hinn tryggði slasast og fellur frá innan eins árs af völdum slyssins greiðir Allianz umsamdar dánarbætur.

Lýta- og fegrunaraðgerðir: Greiddur er kostnaður vegna lýta- eða fegrunaraðgerða eftir slys sem nemur allt að 10.000 evrum, án aukakostnaðar fyrir hinn tryggða.

Björgunarkostnaður: Allianz greiðir björgunarkostnað allt að 10.000 evrum.

Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.








Leit