Slysatryggingar

Slysatrygging með endurgreiddu iðgjaldi (UBR)


Slysatrygging með endurgreiddu iðgjaldi er bæði trygging og sparnaður. Hluti af  iðgjaldi sem hinn tryggði greiðir er endurgreitt í lok samningstíma ásamt ávöxtun.

Slysatrygging allan sólarhringinn hvar sem er í heiminum, í frítíma og vinnu.

Sparnaðurinn er greiddur til baka í lok samningstíma, ásamt tryggðri ávöxtun, hvort sem slysabætur hafa verið greiddar út eða ekki.

Til að tryggja lágmarksávöxtun þarf samningur að halda í 12 ár að lágmarki.

Við útgreiðslu tryggingar er hægt að velja milli eingreiðslu eða að fá greitt út mánaðarlegra.

Við 70% varanlega örorku fimmfaldast grunnslysabætur.

Tryggingin tekur á eftirtöldum þáttum:

Við örorku: Ef slys hefur langtíma afleiðingar eru greiddar umsamdar bætur. Upphæð bóta ræðst af skerðingu á starfshæfni eða hlutfalli örorkunnar.

Viðbótarslysabætur: Ef hinn tryggði er óvinnufær í þrjá mánuði í kjölfar slyss greiðast umsamdar bætur. Ef hinn tryggði er óvinnufær aðra þrjá mánuði (samtals 6 mánuði) greiðist sama bótafjárhæð aftur. Það nægir að hinn tryggði sé metin 50% óvinnufær seinni þrjá mánuðina.

Sjúkrahús dagpeningar: Sjúkrahús dagpeningar eru greiddir fyrir hvern dag sem hinn slasaði liggur á sjúkrahúsi til lækninga. Þessar bætur eru greiddar í allt að þrjú ár eftir slys.

Dánarbætur: Ef hinn tryggði slasast og fellur frá innan eins árs af völdum slyssins greiðir Allianz umsamdar dánarbætur. Hinn tryggði ákveður sjálfur rétthafa bótagreiðslnanna.

Lýta- og fegrunaraðgerðir: Greiddur er kostnaður vegna lýta- eða fegrunaraðgerða eftir slys sem nemur allt að 10.000 evrum án aukakostnaðar fyrir hinn tryggða.

Björgunarkostnaður: Allianz greiðir björgunarkostnað allt að 10.000 evrum.

Allianz verndar alla fjölskylduna: Maki er sjálfkrafa tryggður í þrjá mánuði eftir giftingu og hver fjölskyldumeðlimur í sex mánuði frá fæðingu. Hægt að fá framlengingu um 3 mánuði fyrir maka og 9 mánuði fyrir barn ef haft er samband við Allianz.

Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.








Leit