Viðskiptavinur fyllir út umsókn um útgreiðslu hjá ráðgjafa Allianz að Digranesvegi 1 í Kópavogi.
Útgreiðsla er síðan 20. hvers mánaðar fyrir umsóknir sem berast fyrir þann 10. mánuðinum á undan.
Dæmi: umsókn móttekin 10. nóvember– útborgun 20. desember.
Ef 10. dagur mánaðar er frídagur þá næsti virki dagur á eftir, ef 20. er frídagur þá næsti virki dagur á
undan.
Um útgreiðslu séreignarsparnaðar gilda lög.
http://www.althingi.is/altext/136/s/pdf/0553.pdf
Ef viðskiptavinur á 6.250.000 isk eða meira í endurkaupsvirði þá er mögulegt að fá 416.666 kr. fyrir skatt mánaðarlega í 15 mánuði. Tekjuskattur er greiddur af fyrirframgreiðslunni.
Hámarksupphæð fyrirframgreiðslu er 6.250.000 isk fyrir skatt og er hún greidd út á 15 mánuðum. Ef inneign rétthafa er lægri en 6.250.000 kr. eða rétthafi óskar eftir að taka út lægri upphæð styttist greiðslutíminn hlutfallslega í samræmi við það.
Allianz er með fulltrúa staðsettann í móttöku Allianz að Digranesvegi 1, Kópavogi sem tekur á móti viðskiptavinum Allianz og aðstoðar við fyrirframgreiðslu viðbótarlifeyristryggingar.
Einnig er hægt að senda úttektarbeiðni á utborgun@allianz.is og þarf að koma fram fullt nafn, kennitala og símanúmer.
Allir sem eru með samning um viðbótarlífeyrisstryggingu (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) geta sótt um fyrirframgreiðslu. Útgreitt er endurkaupsvirði (sjá nánar um endurkaupsvirði í spurt og svarað).
Við fyrirframgreiðslu er greiddur tekjuskattur miðað við gildandi lög hverju sinni. Við bendum viðskiptavinum á að fyrirframgreiddar viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) jafngildir launagreiðslum þannig að greiðslur leggjast við launatekjur og geta því haft áhrif á skattþrep tekna.
Fyrirframgreiðsla viðbótarlífeyristryggingar (í daglegu tali einnig nefnt viðbótar- og/ eða séreignasparnaður) hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur fyrirframgreiðslan ekki áhrif á upphæð húsaleigubóta, barnabóta, vaxtabóta eða atvinnuleysisbóta.
Heimildin gildir til 1. október 2012