Kostir slysatryggingar með endurgreiddu iðgjaldi fyrir börn og unglinga (UBR):
Slysatrygging allan sólarhringinn hvar sem er í heiminum.
Hægt er að kaupa tryggingu fyrir börn frá fæðingu til 13 ára aldurs.
Ef iðgjöld eru greidd til 18 ára aldurs eru iðgjöld ásamt ávöxtun greidd út sem eingreiðsla við 25 ára aldur. Hinn tryggði er slysatryggður til 18 ára aldurs.
Til að tryggja lágmarksávöxtun við þarf samningur að halda í 12 ár að lágmarki.
Við 70% varanlega örorku fimmfaldast grunnslysabætur.
Sparnaður er greiddur til baka við lok samnings ásamt tryggðri ávöxtun, hvort sem slysabætur hafa verið greiddar út eða ekki.
Við ákveðin skilyrði greiðir Allianz iðgjöldin út samningstímann:
Ef greiðandi (t.d. foreldri, umráðamaður barns) fellur frá yfirtekur Allianz greiðslur iðgjalda og barnið er tryggt án þess að greiða iðgjald til 18 ára aldurs. Einu skilyrðin eru að greiðandi sé ekki eldri en 70 ára þegar tryggingin er tekin og að samningur hafi verið í gildi í eitt ár. 
Slysatrygging án söfnunar tekur á eftirtöldum þáttum:
Við örorku: Ef slys hefur langtíma afleiðingar eru greiddar umsamdar bætur. Upphæð bóta ræðst af skerðingu á starfshæfni eða hlutfalli örorkunnar.
Viðbótarslysabætur: Hægt er að kaupa viðbótartryggingu sem tryggir bætur ef hinn tryggði verður fjarverandi frá skóla í þrjá mánuði samfleytt í kjölfar slyss. Ef hinn tryggði er fjarverandi frá skóla í aðra þrjá mánuði (samtals 6 mánuði) greiðist sama bótafjárhæð aftur. Það nægir að hinn tryggði sé fjarverandi 50% seinni þrjá mánuðina.
Sjúkrahús dagpeningar: Eru greiddir fyrir 1 til 3 daga sem hinn slasaði liggur á sjúkrahúsi yfir nótt. Frá fjórða degi til allt að þremur árum frá slysi eru greiddir tvöfaldir sjúkrahús dagpeningar.
Dánarbætur: Ef hinn tryggði slasast og fellur frá innan eins árs af völdum slyssins greiðir Allianz umsamdar dánarbætur.
Lýta- og fegrunaraðgerðir: Greiddur er kostnaður vegna lýta- eða fegrunaraðgerða eftir slys sem nemur allt að 10.000 evrum, án aukakostnaðar fyrir hinn tryggða.
Björgunarkostnaður: Allianz greiðir björgunarkostnað allt að 10.000 evrum.
Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.