Viðbótarlífeyrir er valkvæð nauðsyn Viðbótarlífeyrir Allianz

Örskýring á 30 sekúndum Viðbótarlífeyrir Allianz

  • Viðbótarlífeyrir Allianz er séreignarsparnaður, stundum kallaður viðbótarlífeyrissparnaður, þar sem launþegi leggur fyrir 4% eða 2% af launum sínum. Samkvæmt gildandi kjarasamningum greiðir atvinnurekandi 2% mótframlag, sem er í raun launahækkun sem hlýst um leið og þú byrjar að leggja fyrir.
  • Viðbótarlífeyrir Allianz er langtímasparnaðarleið fyrir alla launþega sem hafa náð 18 ára aldri.
  • Ólíkt öðrum viðbótarlífeyrissparnaði á Íslandi er Viðbótarlífeyrir Allianz tryggður í evrum út samningstímann.
  • Sparnaðurinn er ekki aðfararhæfur, þ.e. ekki er hægt að ganga að sparnaðinum til dæmis við gjaldþrot.
  • Tekjuskattur er greiddur við úttekt lífeyris.

Reiknaðu þinn Viðbótarlífeyri

Af hverju að vera með Viðbótarlífeyri

Af

Öllum íslenskum launþegum er skylt að greiða í lífeyrissjóð. Hinn skyldubundni lífeyrir er einungis hluti af meðallaunum ævinnar og geta því tekjurnar lækkað um allt að helming við starfslok.

Viðbótarlífeyrir Allianz tryggir hærri lífeyrisgreiðslu og brúar bilið á milli lágmarksframfærslu og hefðbundinna lífeyrisgreiðslna.

Viðbótarlífeyrir Allianz er tryggingasamningur um að viðbótariðgjaldi sé ráðstafað til kaupa á lífeyristryggingu. Ólíkt öðrum viðbótarlífeyri á Íslandi er sparnaðurinn tryggður í evrum út samningstímann. Þýska ríkið heldur uppi mjög virku eftirliti með störfum þarlendra tryggingafélaga og gilda strangar reglur um fjárfestingastefnu þeirra.

100% tekjur við starfslok

Viðbótarlífeyrir Allianz Gott að vita

Viðbótarlífeyrir Allianz er fyrir þá sem hugsa til framtíðar

Hugsað til framtíðar

Viðbótarlífeyrir Allianz er fyrir þá sem hugsa til framtíðar og vilja auka lífeyrisgreiðslur sínar við starfslok. Um er að ræða langtímasparnað fyrir fólk frá 18 ára aldri.

Fjárfestingarstefna Allianz

Fjárfestingarstefna

Að lágmarki fjárfestir Allianz 70-80% í öruggum fjárfestingum, s.s. skuldabréfum innan ESB, húsnsæðislánum og öðrum öruggum fjárfestingum.

Um skatta og gjöld

Skattar og gjöld

Skattafrestun er á inngreiddum iðgjöldum og er sparnaðurinn ekki aðfararhæfur. Það þýðir að ekki er hægt að ganga að honum vegna fjárhagslega skuldbindinga. Greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu lífeyris.

Mótframlag launagreiðanda í séreignasparnað

Mótframlag

Viðbótarlífeyrir Allianz er séreignarsparnaður þar sem launþegi leggur fyrir mánaðarlega 2% til 4% af launum sínum. Atvinnurekandi greiðir mótframlag við sparnaðinn samkvæmt gildandi kjarasamningi hvers og eins. Algengasta mótframlag atvinnurekenda er 2% en er þó hærra samkvæmt sumum kjarasamningum.

Útgreiðslu valmöguleikar Viðbótarlífeyris

Útgreiðsla

Við samningslok er val við útgreiðslu fjölbreytt.

  • Ævilangur lífeyrir þ.e.a.s. mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur
  • Eingreiðsla
  • Blönduð úttekt eingreiðslu og mánaðarlegra lífeyrisgreiðslna

Þjónusta Allianz á Íslandi

Þjónusta Allianz á Íslandi

Allianz rekur umboð á Íslandi, þar sem viðskiptavinir geta fengið upplýsingar og aðstoð sem þeir óska.

Saman sjáum við lengra

Panta ráðgjöf

Fyrir hverja hentar þessi trygging Í stuttu máli

Hentar þeim sem

  • hugsa til framtíðar og vilja auka lífeyrisgreiðslur sínar við starfslok
  • vilja ná allt að 70% af launum við starfslok
  • vilja tryggðan sparnað í evrum

Hentar ekki þeim sem

  • ætla að spara fyrir fyrstu fasteign eða greiða í 10 ár inn á fasteignalán
  • eru í námi eða hyggja á nám
  • eru að flytja erlendis

Munurinn á tryggingasamningum og fjárfestingarsjóðum

Skoða málið

Er eitthvað annað sem við getum aðstoðað þig með Önnur þjónusta sem Allianz á Íslandi veitir

Lífeyrisviðauki Allianz

Lífeyrisviðauki

Hámarkaðu lífeyrisgreiðslurnar við starfslok

Skoða nánar

Með Lífeyrisviðauka Allianz má tryggja að þú haldir allt að 100% af ráðstöfunartekjum þínum við starfslok.

Líftrygging hjá Allianz

Líftrygging

Á einhver allt sitt undir

Skoða nánar

Líftrygging er ein mikilvægasta trygging sem hver og einn ætti að hafa. Líftrygging þjónar þeim tilgangi að tryggja fjárhagslegt öryggi eftirlifenda. Enginn ábyrgur framfærandi fjölskyldu ætti að vera án líftryggingar.

Af hverju að vera með Viðbótarlífeyri

Tilgreind séreign

Vertu með þér í liði

Skoða nánar

Tilgreind séreign er tegund séreignarsparnaðar þar sem aðilar að kjarasamningum milli ASÍ og SA, geta ráðstafað allt að 3,5% af lífeyrisiðgjöldum sínum í tilgreinda séreign.

Algengar spurningar og svör Hvað vilt þú vita?

Launþegi á rétt á mótframlagi frá launagreiðanda samkvæmt kjarasamningi.
Fjármagnstekjuskattur greiðist ekki af viðbótarlífeyri.
Skerðir hvorki barna- né vaxtabætur.
Skattalegt hagræði myndast þar sem iðgjald er ekki skattlagt við innborgun.
Úttekt getur hafist við 60 ára aldur.
Sveigjanlegar reglur um útborgun.
Hærri ráðstöfunartekjur á eftirlaunaárunum.
Þægilegt sparnaðarform þar sem launagreiðandi sér um að greiða sparnaðinn til vörsluaðila.

Viðskiptavinir Allianz hafa fjölbreytt val um útgreiðslu. Þeir geta fengið:

A) Eingreiðslu
B) Ævilangan lífeyri. ( athugið að aðeins er hægt að fara í ævilangan lífeyri við samningslok )
C) Tekið hluta sem eingreiðslu og hluta sem ævilangan lífeyri.

Samningar um Viðbótarlífeyri Allianz sem stofnaðir voru fyrir 1. apríl 2005 hafa rétt á að fara í 24 mánaða iðgjaldafrí en samningar sem stofnað var til eftir 1. apríl 2005 hafa rétt á 36 mánaða iðgjaldafríi.

Tryggingarvernd í iðgjaldafríi er mismunandi eftir stöðu og tegund hvers samnings og við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér málið vel.

Til að rétthafar gætu nýtt tímabundna heimild samkvæmt bráðabirgðaákvæði XVI við lög nr. 129/1997 til ráðstöfunar iðgjalds til lækkunar húsnæðisskulda án þess að það væri til tjóns fyrir viðkomandi (þ.e. viðkomandi þyrfti ekki að segja upp samningi) var samþykkt af Allianz Lebensversicherungs að tryggingarsamningar yrðu frystir eða læstir þar til úrræðinu líkur.

Til þess að viðskiptavinir gætu nýtt sér úrræðið þurfti því að breyta tímabundið um framkvæmd samninga þeirra sem sóttu um úrræðið (frá því sem kemur fram í skilmálum samningsins), þ.e. samningurinn var frystur og öll inngreidd iðgjöld rétthafa færð á sérstakan ISK biðreikning á nafni viðkomandi. Fjárhæðir umfram hámark ráðstöfunar skv. bráðabirgðaákvæðinu, ef um slíkar væri að ræða, safnast upp á þeim reikningi á tímabilinu meðan úrræðið er virkt og greiðast í síðasta lagi inn á tryggingarsamninginn í lok tímabilsins.

Allianz er skylt samkvæmt þýskum lögum að skila 90% af umframhagnaði aftur til viðskiptavina (þ.e. umfram þá ávöxtun sem áætluð var við upphafs samnings). Allianz hefur verið að skila 94-98% sem þýðir að Allianz gerir betur en lofað er. Viðskiptavinir Allianz njóta góðs af því, ekki eingöngu fyrirtækið.

Uppsagnarvirði eru inngreidd iðgjöld ásamt ávöxtun að frádregnum kostnaði við samning en kemur eingöngu til ef samningi er slitið fyrir samningslok.

Millifærslugjald er það gjald sem er greitt samkvæmt gjaldskrá Íslandsbanka fyrir hvert iðgjald sem er sent til Allianz í Þýskalandi. 1€ fyrir hverja færslu.

Erlendum ríkisborgurum innan og utan EES- svæðisins heimilt að sækja um útgreiðslu á inneign í Viðbótarlífeyri Allianz við flutning frá Íslandi. (4. mgr.19. gr. laga nr. 129/1997). Þetta á þó aðeins við ef slík endurgreiðsla er ekki óheimil samkvæmt milliríkjasamningi á milli Íslands og heimalands.
Leggja þarf fram afrit af vegabréfi og staðfestingu á flutningi úr landi frá Þjóðskrá. (Confirmation from Registers Iceland)

Samningshafar 60 ára og eldri geta tekið út fyrirframgreiðslu eða sagt upp samningi sínum og fengið endurkaupsvirði greitt út.

Verðir þú að hætta störfum vegna örorku af völdum slyss eða veikinda áttu rétt á að fá inneign þína greidda út, gegn framvísun staðfestingar frá TR, á minnst 7 árum eða á þeim tíma sem vantar upp á 60 ára aldur.

Sé innstæða undir ákveðnum viðmiðum, (500.000 kr. vísitölutryggt frá 1996 skv. reglugerð nr. 698/1998 11.gr. – 1.599.010.- kr. í október 2022) greiðist inneignin út í eingreiðslu.

Útgreiðsla á viðbótarlífeyrissparnaði hefur almennt ekki áhrif á útreikning lífeyrisgreiðslna (elli-, örorku-, slysa- og endurhæfingarlífeyris og tengdra greiðslna) frá Tryggingastofnun.

Útgreiðsla á viðbótarlífeyrissparnaði hefur aðeins áhrif á framfærsluuppbót sem endurhæfingar- og örorkulífeyrisþegar geta átt rétt á.

Þetta á bæði við útgreiðslu til rétthafa og lögerfingja.

Viðskiptavinir Allianz sem hafa hug á að nýta inngreidd iðgjöld inn á lán til 31. desember 2024 þurfa að sækja um á vef RSK www.leidretting.is.

Þegar sótt hefur verið um að ráðstafa iðgjöldum inn á lán í gegnum vef RSK er samningurinn settur í bið hjá Allianz í Þýskalandi til 1. janúar 2025. Iðgjöld sem eru umfram heimild RSK eru geymd á biðreikningi í nafni samningshafa.

Mikilvægt er að tilkynna til skrifstofu Allianz ef þátttöku í úrræðinu er hætt og verður þá samningurinn endurvakinn í Þýskalandi.

Viðskiptavinir Allianz sem hafa hug á að nýta sér iðgjöld vegna kaupa á íbúðarhúsnæði og/eða greiða inn á lán vegna fyrstu kaupa í 10 ár geta ekki gert það í gegnum Allianz trygginga-samninga.

Ástæðan er sú að Allianz er með þýska tryggingasamninga, en ekki sjóð, og ekki er hægt að breyta skilmálum tryggingasamninga afturvirkt. Iðgjöld eru greidd mánaðarlega inn á tryggingarsamning hjá Allianz í Þýskalandi og því ekki hægt að ráðstafa þeim til kaupa á íbúðarhúsnæði eða inn á lán í 10 ár.

Það er hægt hjá Allianz eins og öðrum vörsluaðilum.

Þegar sótt hefur verið um að ráðstafa iðgjöldum inn á lán í gegnum vef RSK er samningurinn settur í bið hjá Allianz í Þýskalandi til 1. janúar 2024. Iðgjöld sem eru umfram heimild RSK eru geymd á biðreikningi í nafni samningshafa. Fjárhæðir umfram hámark ráðstöfunar skv. bráðabirgðaákvæðinu, ef um slíkar væri að ræða, safnast upp á þeim reikningi á tímabilinu meðan úrræðið er virkt og greiðast í síðasta lagi inn á tryggingarsamninginn í lok tímabilsins.

Skv. 9 gr. reglugerðar um samræmt verklag við ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar „er vörsluaðila séreignarsparnaðar heimilt að taka gjald af rétthafa vegna kostnaðar við ráðstöfun iðgjalda rétthafa til lánveitanda eða við útgreiðslu húsnæðissparnaðar. Vörsluaðili skal draga gjald vegna kostnaðar frá iðgjaldi áður en því er skilað til lánveitanda eða frá útgreiðslu húsnæðis­sparnaðar.“ Hjá Allianz nemur þetta gjald 250 kr. af hverri millifærslu til að mæta útlögðum tækni- og bankakostnaði.

Svör við algengum spurningum má finna á vef RSK www.leidretting.is

Mikilvægt er að tilkynna til skrifstofu Allianz ef þátttöku í úrræðinu er hætt og verður þá samningurinn endurvakinn í Þýskalandi.

Frá og með 1. júlí 2017 geta þeir sem eru að kaupa fyrstu fasteign safnað allt að 10 ára iðgjöldum í útborgun og/eða til greiðslu inn á húsnæðislán. Ekki er hægt að nýta sér þetta úrræði í gegnum Allianz tryggingasamninga.

Ástæðan er sú að Allianz er með þýska tryggingasamninga, en ekki sjóð, og ekki er hægt að breyta skilmálum tryggingasamninga afturvirkt. Iðgjöld eru greidd mánaðarlega inn á tryggingarsamning hjá Allianz í Þýskalandi og því ekki hægt að ráðstafa þeim til kaupa á íbúðarhúsnæði.

Ef þú þarft nánari upplýsingar hafðu þá samband við okkur í síma 595 3300

Samning um Viðbótarlífeyri er hægt að framlengja í allt að 5 ár.

Er það gert í gegnum skrifstofu Allianz, [email protected] eða í síma 595 3300

Allianz á Íslandi hefur samband við þig 3-4 mánuðum fyrir samningslok og fer yfir það sem í boði er:

  • Viltu framlengja samning í 1-5 ár
  • Viltu hefja útgreiðslu með eingreiðslu eða mánaðarlegum lífeyri

Hafa þarf samband við skrifstofu Allianz með því að senda póst á [email protected] eða hafa samband í s. 595-3300 og tilkynna andlát.

Allianz á Íslandi mun annast gagnaöflun og sjá um samskipti við Allianz í Þýskalandi. Ef óskað verður eftir viðbótarupplýsingum eða ítarlegri gögnum verður haft samband við rétthafa.

Ferlið getur tekið nokkrar vikur og verður óskað eftir bankaupplýsingum þegar kemur að útgreiðslu.