Allianz býður upp á óbreytt iðgjald út samningstímann.
Ef hinn tryggði fellur frá innan 3ja mánaða frá fæðingu/ættleiðingu barns eða innan 3ja mánaða frá upphafi byggingar eigin húsnæðis eða kaupa á fasteign til eigin nota er greidd aukagreiðsla sem nemur 25 prósentum af umsömdum tryggðum höfuðstól við andlát, en þó að hámarki 50.000 evrur.
Ef þú tilkynnir okkur skriflega (til dæmis í bréfi, símbréfi eða tölvupósti) um fæðinguna, ættleiðinguna, byggingarframkvæmdina eða fasteignakaupin innan þriggja mánaða lengist þessi hækkaða tryggingarvernd við andlát í samtals 9 mánuði.
Hægt er að fara fram á að umsamin líftryggingarfjárhæð verði greidd út fyrirfram, komi til alvarlegs sjúkdóms á lokastigi.