Tryggðu afkomendum þínum fjárhagslegt forskot Barnasparnaður

Örskýring á 30 sekúndum Barnasparnaður Allianz

Sparnaðurinn er forskot á langtímasparnað barnsins.

Barnasparnaður hentar til dæmis:

  • Foreldrum sem vilja að tryggja fjárhagslegt öryggi barna sinna – með ríkulegri ávöxtun til frambúðar.
  • Öfum og ömmum sem vilja veita barnabörnum sínum öruggt fjárhagsframlag til lengri tíma.
  • Foreldrum, forráðamönnum eða öðrum aðstandendum barna á aldrinum 0 - 16 ára.

Af hverju að vera með Barnasparnað

Child

Barnasparnaður er fyrir þá sem vilja veita börnum og afkomendum sínum fjárhagslegt öryggi til framtíðar. Sparnaðurinn er forskot á langtíma sparnað barnsins og er hann tryggður í evrum út samningstímann, ólíkt hefðbundum sparnaðarreikningum.

Barnasparnaður Allianz er tryggingasamningur með sparnaði. Iðgjöld greiðast í evrum út samningstímann. Hægt er að frysta greiðslur iðgjalda t.d. við atvinnumissi, nám eða langvarandi veikindi.

younger

Árni fékk Barnasparnað Allianz í skírnargjöf frá afa sínum og ömmu. Þegar Árni tók fyrstu skrefin inn í fullorðinsárin hafði hann fjárhagslegt forskot á jafnaldra sína. Þökk sé Barnasparnaði Allianz, átti hann nóg fyrir útborgun í fyrstu íbúð. Við 18 ára aldur valdi Árni sjálfur að yfirtaka samninginn og greiðir sjálfur iðgjöldin.

Veldu leið sem hentar þér

Þegar þú velur að eiga viðskipti við Allianz á Íslandi stendur þér til boða að velja ávöxtunarleið sem best hentar þínum þörfum og markmiðum. Meiri trygging veitir aukið öryggi en takmarkar möguleika á tækifærismiðuðum fjárfestingum. Minni trygging býður upp á meira svigrúm fyrir ávöxtun, en getur einnig valdið sveiflum á samningstímanum.

Fyrir barnasparnað er hægt að velja milli 80% eða 90% tryggðs höfuðstóls, en nánar er hægt að lesa um ávöxtunarleiðirnar hér að neðan.

KD-VS-P-antexta3

Barnasparnaður Gott að vita

Parent tying shoelaces

Hugsa til framtíðar

Barnarparnaður er fyrir þá sem hugsa til framtíðar fyrir börnin sín.

Child with a teddy bear

Forskot út í lífið

Lagt er fyrir í sparnað til að tryggja barninu fjárhagslegt forskot í framtíðinni

infant child with mother

Útgreiðslur

Ýmsir möguleikar eru varðandi útgreiðslu sparnaðar og lengd samningstíma.

Child sleeping on shoulder

Fjölbreyttir valkostir

Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, er hægt að fá lán út á inneignina  sem getur komið sér vel á ýmsum tímamótum í lífi barnsins s.s. vegna náms, vegna íbúðakaupa o.sv. fr.

Mother with children on couch

Sveigjanleiki

Hægt er að stöðva greiðslu iðgjalda tímabundið og fara í iðgjaldafrí t.d. við atvinnumissi, nám eða veikindi tryggingataka.

Allianz Arena

Þjónusta Allianz á Íslandi

Allianz rekur umboð á Íslandi, þar sem viðskiptavinir geta fengið upplýsingar og aðstoð sem þeir óska.

Munurinn á tryggingasamningum og fjárfestingarsjóðum

Skoða málið

Er eitthvað annað sem við getum aðstoðað þig með Önnur þjónusta sem Allianz á Íslandi veitir

boy falling off skateboard

Slysatrygging fyrir börn og unglinga

Hvar sem er, hvenær sem er!

Skoða nánar

Enginn getur tryggt að börnin þeirra verði ekki fyrir slysi en með slysatryggingu Allianz má tryggja fjárhagslegt öryggi ef slysið veldur tjóni.

father mother daughter with stroller

Líftrygging með söfnun

Vertu með þér og þínum í liði

Skoða nánar

Líftrygging með söfnun er ábyrgur kostur sem veitir eftirlifendum þínum fjárhagslegt öryggi

Lífeyrisviðauki Allianz

Lífeyrisviðauki Allianz

Hámarkaðu lífeyrisgreiðslurnar við starfslok

Skoða nánar

Með Lífeyrisviðauka Allianz má tryggja að þú haldir allt að 100% af ráðstöfunartekjum þínum við starfslok.

Algengar spurningar og svör Hvað vilt þú vita?

Hægt er að stofna barnasparnað um leið og barnið er komið með kennitölu.

Hægt er að sækja um barnsaparnað fyrir börn allt að 16 ára aldri.

Hægt er að velja á milli:

  • Perspektive – með 90% tryggðum höfuðstól.
  • KomfortDynamik – með 80% tryggðum höfuðstól.

Fyrir fullorðna er einnig valkostur með 60% tryggðum höfuðstól, en hann er ekki í boði fyrir barnasparnað.

Nánari upplýsingar um ávöxtunarleiðirnar má finna hér:

Tryggingataki velur samningsárafjöldann við samningsgerð.

Lágmarkstími sparnaðar er 5 ár, en hægt er að gera samning sem gildir allt til 85 ára aldurs hins tryggða.

Skuldfærslur færast ekki sjálfkrafa á milli greiðslukorta og því þarf að skrá nýtt kort á "Mínar síður".

Einnig er hægt að hafa samband við okkur í síma 595 3300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Viljir þú breyta úr bankakröfu í greiðslukort, eða öfugt, er best að hafa samband við okkur í síma 595 3300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Já, hægt er að greiða eingreiðslu inn á samning einu sinni á ári:

Fyrir samninga gerða árið 2019 eða síðar er lágmarksgreiðsla 500€ og að hámarki 30.000€.
Fyrir samninga gerða árið 2018 eða fyrr er lágmarksgreiðsla 1000€ og að hámarki 20.000€.

Já, það er mögulegt.

  • Samningar stofnaðir fyrir 1. janúar 2005 geta farið í allt að 24 mánaða iðgjaldafrí.
  • Samningar stofnaðir eftir 1. janúar 2005 geta farið í allt að 36 mánaða iðgjaldafrí.

Tryggingarvernd á meðan á iðgjaldafríi stendur fer eftir stöðu og tegund samningsins. Við hvetjum því viðskiptavini til að kynna sér rétt sinn með því að hafa samband í síma 595 3300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Já, það er mögulegt að gera breytingar á iðgjöldum.

  • Alltaf er hægt að lækka iðgjaldið.
  • Almennt er hægt að hækka iðgjöld um 20% fyrir samninga sem tóku gildi eftir 1. janúar 2018.

Heimild til hækkunar fer þó eftir skilmálum hverrar tryggingar.

Fyrir frekari upplýsingar geturðu haft samband í síma 595 3300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Já, vextir, arður og önnur ávöxtun af lífeyristryggingum og söfnunartryggingum teljast til fjármagnstekna þegar þær eru greiddar út.

  • Fjármagnstekjuskatt ber almennt að greiða í því landi sem þú átt lögheimili.
  • Viðskiptavinir Allianz búsettir á Íslandi greiða því skatt af slíkum tekjum hér á landi.

Hafi fjármagnstekjuskattur verið greiddur í Þýskalandi þá aðstoðar Allianz á Íslandi viðskiptavini sína við að fá fjármagnstekjuskattinn endurgreiddan.

Samkvæmt ákvæðum tvísköttunarsamnings á milli Íslands og Þýskalands gildir um vexti, sem myndast í aðildarríki og greiddir eru aðila heimilisföstum í hinu aðildarríkinu, að þeir skulu einungis skattlagðir í síðarnefnda ríkinu og er þess vegna hægt að sækja um að fá þennan skatt endurgreiddan frá Þýskalandi.

  • Fjármagnstekjuskattur í Þýskalandi: 25%
  • Fjármagnstekjuskattur á Íslandi: 22%
  • Frítekjumark á Íslandi 300.000.- kr.

Viðskiptavinur þarf að skrifa undir umboð sem er sent til skattayfirvalda í Þýskalandi og sér Allianz á Íslandi alfarið um ferlið.

Já, þú þarft að gera grein fyrir vaxtatekjum, arði og öðrum fjármagnstekjum á skattframtali.

  • Allianz sendir Skattinum árlega upplýsingar um stöðu samninga.
  • Við útgreiðslu þarf samningshafi að skrá fjármagnstekjur á skattframtal.
  • Upplýsingar vegna útfyllingar eru aðgengilegar á "Mínar síður"

Fyrir frekari upplýsingar geturðu haft samband í síma 595 3300 eða sent tölvupóst á [email protected].